Svo fegin....

Ég er svo glöð að ég þarf ekki að fara í strætó eða lest í upphaf og lok vinnudags. Það mældist 52°C hiti í strætóunum í gær og 47°C í dýpstu lestarlínunum (Central línunni). Fyrir utan rakann sem stappa af fólki gefur af sér. Þetta eru óbærilegar aðstæður hreint út sagt. Það má ekki einu sinni flytja nautgripi þegar hitinn er upp fyrir 27°C. Oj bara.
Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It