Ein milljón......
Hmm, ekkert skrýtið þó ég hafi enga tiltrú á læknum og spítölum hérna. Var að lesa í blaðinu í dag að það er ein milljón manns í Bretlandi á ÁRI sem slasast alvarlega og um 2200 manns DEYJA sem vegna læknamistaka, slysa, rangrar lyfjameðferðar o.fl. Þetta eru EINUNGIS þau tilfelli sem eru skráð því það eru mun fleiri tilvik (talið vera um 250 þúsund fleiri) sem ekki eru skráð af starfsfólki vegna hræðslu um að missa starfið. KOMM--OOOONNNNN.
Talandi um hræðslu. Ég fór í strípur áðan (fer ekki til Íslands í þessum mánuði eins og síðustu 15 mánuði). Góð ráð dýr því það fer ekki hver sem er í hausinn á mér. No way. Hef verið svo heppin að geta látið Auði (á Hárgallerí. Hún er rosa flínk og fær) lita mig og klippa þegar ég er heima, sem betur fer því gæði hárgreiðslustofa hér er afar, afar slök. En jæja ég tók sénsinn og fór á Hair+ sem er hérna í götunni. Það var mjög fínt bara. Þær voru rússneskar píurnar og töluðu rússnesku allan tímann sem þær voru að fikta í hárinu á mér. Þær voru sem sagt tvær um eitthvað sem Auður gerir ein á sama tíma. O well. Hárið er á í heilu lagi og lítur bara allt í lagi út. Þægilegt líka því þetta er beint á móti húsinu okkar eiginlega. Þær eru með nagla og fótsnyrtingu og nudd og vax og ég veit ekki hvað og hvað í kjallaranum. Kæmi mér ekkert á óvart þó þær væru með einhverja 'flengi-þjónustu' líka (nei segi bara svona).