Mikið var
Jæja mikið var að ég hef tíma til að blogga aðeins. Ég er búin að vera á haus og meira en það síðan ég kom frá Afríku, búin að vera að vinna, þvo þvott, taka til, baka afmælisköku (átti sko afmæli í gær) o.s.frv. Afríkuferðin gekk bara vel og allir komust heilir heim. Þetta var auðvitað mikil vinna, eins og við var að búast en engu að síður gefandi. Við erum búin að henda myndum inn á flickr en við eigum eftir að velja myndir úr þeim til að setja inn á síðuna hans Jóhannesar (þar sem við skrifum um myndirnar). Flickr er meira hugsað sem backup fyrir myndirnar okkar. Það er sem sagt ekkert búið að ritskoða myndirnar :)
Þrátt fyrir mikið annríki náðum við að gera margt skemmtilegt. Til dæmis fórum við í jet ski safari (magnað), Jóhannes og fleiri fóru í köfun og einn daginn fórum við að veiða (áður en hópurinn kom) og ég sólbrann svo illa á ristunum að ég þurfti að vera í sokkum allan tímann :( var samt með sólarvörn og allt. Greinilega ekki nóg. Svo héldum við grillveislu á einkaströnd þegar pabbi átti afmæli 21. apríl síðastliðinn. Kokkarnir á Coconut Cottages (þar sem Stephanie yfirskipuleggjari ræður ríkjum) grilluðu kjöt, fisk, grænmeti og svo var borin fram kaka. Ekki amalegt að geta verið á einkaströnd (engir túristar) í hvítum sandinum, við varðeld, alveg við sjóinn, í golunni, undir stjörnubjörtum himni. Maður getur alveg vanist því allavega.
Það er alltaf jafn gaman að vera í Kenya, það er svo allt, allt öðruvísi en það sem maður á að venjast; fólkið, maturinn, heitt og rakt loftslagið og bara þjóðin sjálf svo framandi og áhugaverð.
Já og ég smakkaði auðvitað helling af góðum mat, bæði á veitingastöðum (t.d. á Nomands, Ali Barbour's Cave og Tamarind) sem og hjá kokkunum á Coconut þar sem við dvöldum áður en hópurinn kom. Ég fékk meðal annars hrikalega góða uppskrift af BBQ sósu sem ég ætla að birta þegar ég hef tíma á vefnum.
Jæja hef þetta ekki lengra að sinni, þarf að fara að hafa mig til fyrir næstu ferð, í kvöld. Það er nú bara Ísland (held ég meiki ekki kuldann samt, er í einhverju bjartsýniskasti að horfa á öll léttu fötin sem ég var með í Afríku og halda að ég geti tekið þau með :()