Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 10. mars, 2010

Sumaruppskriftir 2009

Jæja nóg komið af röfli he he. Nú er nefnilega komið sumar og því ekki úr vegi að spýta út nokkrum sumarlegum uppskriftum! Elva vinkona mín gaf mér helling af rabbabara svo úr varð rabbabaramaraþon (prófið að láta útlendinga segja þetta orð he he) og afraksturinn sést m.a. hérna fyrir neðan. Það er t.d. rabbabara- og jarðarberjaís, rabbabaraíshristingur, rabbabara- og bananadrykkur o.fl. En það er ekki bara rabbabari á boðstólum heldur er ýmislegt fleira líka eins og salat, súkkulaðimús, íspinnar o.fl.

Einnig vil ég láta ykkur vita að ég er búin að opna Sumarflokkinn á CafeSigrun

Vona að þið njótið vel….

Ástaraldins- og mangodrykkur
Ástaraldins- og mangodrykkur
Súkkulaði- og bananamús
Súkkulaði- og bananamús
Rabbabara- og jarðarberjaís
Rabbabara- og jarðarberjaís
Jarðarberja- og banana íspinnar
Jarðarberja- og banana íspinnar
Einfalt salat með tahini salatsósu (dressingu)
Einfalt salat með tahini salatsósu (dressingu)
Tortilla kökur (vefjur)
Tortilla kökur (vefjur)
Rabbabara- og jarðarberjaíshristingur
Rabbabara- og jarðarberjaíshristingur (sjeik)
Rabbabara- og bananadrykkur
Rabbabara- og bananadrykkur


 

Viltu segja eitthvað?


 
 
Bogga sagði:

Takk fyrir rábærar uppskriftir,bakaði vefjurnar og þær eru bara æði,gott að hnoða deigið og fletja út,held líka að ég geti notað þær í leikskólanum líka(er að vinna í eldhúsi þar) þar nota ég brauðuppskriftir frá þér og hummus…p.s salatið er líka frábært í sumaruppskriftunum….Takk takk kveðja Bogga


 
 
stína sagði:

Þetta er hvað öðru girnilegra, hef verið að leita mér að vefjuuppskrift… En nú er engin miskunn-út í garð að taka upp rabbarbara;) Takk fyrir hugmyndaauðgi þína. Kveðja Stína


 
 
Melkorka sagði:

Flottar litasamsetningar hjá þér! Takk fyrir. Get ekki beðið eftir að fá uppskriftirnar á prenti og finna þeim góðan og aðgengilegan stað í eldhúsinnréttingunni :)


 
 
Sólveig S. Finnsdóttir sagði:

hæ útá is er gott að eiga í frystan td um 200-300 gr af rababara og hita svo í potti með 100- 200 gr af ávaxtasykur og hella utá is hafa rababarsosuna heita, þetta er hunang, mjög gott.
kv.mamma


 
 
Lisa Hjalt sagði:

ég á ekki til orð yfir þessa sumargleði!

TAKK!