Fjölmiðlar ættu að skammast sín fyrir að blása þessa blessuðu svínaflensu upp…..hvernig væri að horfa á hlutina í samhengi????? Ég sá t.d. á mbl um daginn myndbrot þar sem fólk var að birgja sig upp af grímum og spritti heima á Íslandi. Verslunarstjórinn var nokkuð viss um að fólk myndi labba með grímur á Laugaveginum innan tíðar. Ég varð rauð í framan úr hallæri og fékk kjánahroll niður á bak…..er.fólk.virkilega.svona.stupid? Þetta er reyndar töluvert skárra hér í UK en mér varð það þó á að hnerra út í búð um daginn. Ég dró upp hreina þurrku, snýtti mér og fleygði þurrkunni í ruslið. Konan sem var fyrir aftan mig í röð sagði…”jeminn eini maður er nú svolítið stressaður sko….þú veist….út af svínaflensunni”… Ég horfði á hana með afar óvinsamlegu augnarráði og bölvaði í hljóði…..datt í hug að halda smá fyrirlestur fyrir hana…ákvað samt að vera ekki að eyða tímanum í hana og rífst hér í staðinn ykkur til skemmtunar he he. Hér eru nokkrar tölur sem gætu útskýrt kjánahrollinn:
Voru ekki 65 sem hafa látist úr svínaflensu? Þar af aðallega eldra fólk og ung börn og þar af á frekar fátækum svæðum þar sem læknisþjónusta var ekki til fyrirmyndar?
Bara pæling.
——
(Ath. Samantektin er mín en unnin upp úr tölfræði frá World Health Organization og fleiri stofnunum).
Ég hreinlega veit ekki Melkorka…þetta fer yfirleitt eftir því hversu mikil gúrkutíð er í fjölmiðlum, hversu mikið þeir blása svona fréttir upp. Ég ætla a.m.k. frekar að hafa áhyggjur af því að verða fyrir bíl og passa mig í umferðinni, töluvert meiri líkur á því að ég sé utan við mig og labbi út á götu
Gott að fá þessa upptalningu hjá þér Sigrún. Ég er ein af þeim sem hef stöðugar áhyggjur af alls konar hugsanlegum veikindum þannig að ég hef gott af að heyra það sem þú sagðir. En hvað ef flensan versnar í haust? Heldurðu að fjölmiðlar blásið það upp?
En thad er líklegast ekki sama fólkid. Their sem nota grímu til ad verjast fuglaflensunni, nota mjog liklega líka smokk
Thad eru fullt af hormungum út um allan heim. Thví midur. En finnst samt ad vid eigum ekki ad eyda of mikilli orku í ad velta okkur upp úr harmleiknum, og mida hann saman. Alltaf eitthvad sem er verra en annad. Frekar einbeita sér ad einthverjum harmleik sem snertir mann og reyna gera eitthvad gott thar. Hjálparstarf eda stydja og styrkja á thann hátt sem madur getur
Ja sko…Lena ég er ekki að meina að fólk þurfi að vera hrætt við að deyja úr hungri eða eyðni eða krabbameini eða öðru…heldur er ég að meina hversu litla umfjöllun t.d. það að tugir þúsunda barna látist á hverjum degi en við heyrum sjaldan um það í blöðunum…vissir þú t.d. að allt þetta fólk deyr úr berklum árlega? Hefurðu heyrt um það í fjölmiðlum?
Svo er líka kaldhæðnislegt að fólk notar grímur til að verjast svínaflensu en notar ekki smokka til að verjast eyðni? Það eru svoleiðis atriði sem ég er að benda á…. því hysterían er svo mikil.
Mér finnst allveg rétt hjá thér ad fólk er ad gera allt of mikid vedur útaf thessu. EN- thad er samt ekki allveg hægt ad bera thetta saman vid thau dæmi sem thú tekur. Í fyrsta lagi hefu ungt fólk veikst, ekki bara børn, thad er eitt ad thví sérstaka vid svinaflensuna. Annad thá eru thessi dæmi ekki sambærileg. Heilbrigd ung kona í kanski í new york, tharf ekki ad hrædast ad deyja úr hungri,thad er ekki raunhæft í hennar lífi. En thad er raunhæft ad hún geti smitast af flensu. Margt fólk hrædist veikindi, og thá sérstaklega veikindi sem geta leitt til dauda. Og fjølmidlar blása jú alltaf svona flensur upp úr øllu valdi. Svo ad fyrir fólk sem hefur ekki mikla thekkindu á thessu svidi er mjøg skiljanlegt ad thad geti ordid óttaslegid.