Jæja, þá erum við komin til London…..eða heim eins og við segjum. Það er dásamlegt að losna við kulda og krepputal í smá tíma og 24 tímar hafa náð að detoxa mann aðeins frá því bulli sem umlykur mann allan daginn heima. London er upp á sitt besta og orðin græn og nokkuð hlý (miðað við rokrassgatið Ísland að minnsta kosti). Íbúðin okkar er reglulega fín og á besta stað með útsýni yfir fallegan garð. Við erum því eins og blóm í eggi. Hér er það sem á daginn okkar dreif í dag:
Á morgun er það svo alvara lífsins en við þurfum að vinna á morgun (enda ekki í fríi allan tímann sem við erum hér), við eigum þó kvöldin og helgarnar lausar sem við munum nýta vel. Það sem við ætlum m.a. að gera er að fara í uppáhalds bókabúðina mína, listasöfn, skoða einhverja nýja veitingastaði (og heimsækja uppáhaldsstaði), fara á Borough matarmarkaðinn (uppáhalds markaðurinn minn), Jóhannes þarf örugglega að þræða útivistarbúðir sem og tölvubúðir o.fl., o.fl.
Sæl Hilma
Ég ætla að senda póstinn áfram á Jóhannes…hann er kaffinördinn á heimilinu og getur örugglega hjálpað þér áleiðis
Kv.
Sigrún
Kæra Sigrún, Ég hef lesið síðuna þína í þó nokkurn tíma og m.a. orðið þess vísari að þið eruð mikið kaffiáhugafólk – eða amk maðurinn þinn. Mig langaði að gerast svo djörf að leita ráða hjá ykkur varðandi kaup á sæmilegri kaffivél fyrir heimilisnotkun með greip, gufustút og svo kvörn. Ég er búin að fara út um allt hér í Rvk. Getið þið mælt með e-u sérstöku merki?
Vil helst ekki fara mikið yfir 90.000. Te og kaffi er með sætar, litlar vélar en ég óttast að þær nái ekki nógu miklum þrýstingi. Það er svona aðaláhyggjuefnið.
vá, yndislegt! mér blöskrar einmitt verðlagningin hér og okrið. Mér finnst t.d. skuggalegt hvað “himnesk hollusta” vörurnar hafa hækkað ótrúlega, meira en tvöfaldast í verði í bónus!