Jæja þá eru voruppskriftirnar komnar inn. Vorið er svolítið skrýtinn tími því það er komið sumar samkvæmt almanakinu en oft er ansi kalt….þessi ruglingur endurspeglast svolítið í uppskriftunum hjá mér líka en voruppskriftirnar eru yfirleitt svolítið bland í poka hjá mér. Þar má meðal annars finna tvo sniðuga drykki, annan járnríkan og hinn próteinríkan. Einnig má finna orkubita s.s. orkuhnullunga og sesambita (upplagðir í gönguferðir sumarsins), hummus með rauðri papriku og fleira.
Vona að þið njótið vel.
bara að kvitta, takk fyrir nýjar uppskriftir. alltaf svo fínar myndirnar.
Það er beinlínis hættulegt að opna bloggið núna með þessum svakalega girnilegu myndum. Var búin að myndakvitta á Facebook en gleymdi því hér.
Delicious as always, takk fyrir mig, .
Namm…Nú er ég sko á leið heim að baka. Drengurinn á leið í æfingabúðir og verður alsæll að fá svona gúmmulaði með sér í rútuna.
Takk fyrir að deila þessu með okkur hinum Sigrún.