Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 11. mars, 2010

Samantekt fyrir April, 2009

Voruppskriftir 2009

26. April 2009

Jæja þá eru voruppskriftirnar komnar inn. Vorið er svolítið skrýtinn tími því það er komið sumar samkvæmt almanakinu en oft er ansi kalt….þessi ruglingur endurspeglast svolítið í uppskriftunum hjá mér líka en voruppskriftirnar eru yfirleitt svolítið bland í poka hjá mér. Þar má meðal annars finna tvo sniðuga drykki, annan járnríkan og hinn próteinríkan. Einnig má finna orkubita s.s. orkuhnullunga og sesambita (upplagðir í gönguferðir sumarsins), hummus með rauðri papriku og fleira.

Vona að þið njótið vel.

Bygg- og cashewhnetuborgarar
Bygg- og cashewhnetuborgarar
Wagamama laxanúðlur
Wagamama laxanúðlur
Döðlu- og appelsínubitar
Döðlu- og appelsínubitar
Orkuhnullungar
Orkuhnullungar
Hummus með grillaðri papriku
Hummus með grillaðri papriku
Sesam- og döðlu orkubitar
Sesam- og döðlu orkubitar
Járnríkur aprikósudrykkur
Járnríkur aprikósudrykkur
Prótein- og kalkrík hnetu- og möndlumjólk
Prótein- og kalkrík hnetu- og möndlumjólk
Viltu segja eitthvað? (5)


 
 

Afmælis-strympa

25. April 2009

Ég fæddist fyrir 35 árum….þennan dag, 25. apríl. Átti reyndar að fæðast miklu seinna en var að flýta mér…eins og venjulega. Ég er búin að fá skemmtilegar gjafir og kveðjur í dag, nokkrar matreiðslubækur (alltaf gaman), miða á U2 tónleikana í sumar auðvitað (reyndar ekki bein afmælisgjöf en ég ákvað að eigna mér miðana í afmælisgjöf engu að síður), góðan sojalatte og fleira. Nú er bara spurning að fara að telja niður….ætla að gera það þegar ég er komin aðeins hærra upp í aldursflokki.

Ég verð bara fegin þegar deginum í dag lýkur og allt þetta stjórnmálabull er yfirstaðið (í bili vonandi)…það er fátt um fína drætti í stjórnmálunum og eiginlega enginn munur á kúk og skít. Þeir sem trana sér fram eru eins og trúarofstækismenn og froðufella eins og ýgir hundar þegar á þá er yrt. Aðrir eru beinlínis veikir á geði. Við eigum ekki sjónvarp sem betur fer því ég fer bara í vont skap við að hlusta á alla þessa súpu aftur og aftur. Það er nóg að lesa um hana. Ég hlakka bara til að losna frá allri umræðunni í smá tíma og þó að stjórnmálin í London séu nú eins og þau eru, þá eru þau ekki íslensk. Mér finnst stundum eins og ég búi í Strumpalandi og að Kjartan hin illi sé alráður án þess að vita neitt í sinn haus og við strumparnir erum jafn vitlaus og alltaf að láta plata okkur. Ég trúði á Strumpana þegar ég var yngri og taldi mig sjá þá hér og þar, lifandi. Ég trúði á þá eins og krakkar trúa á jólasvein eða guð eða eitthvað. Ég trúði ekki á neitt æðra en Strumpa, og hef ekki gert síðan þó ég trúi ekki á þá lengur (lofa). Ég hef samt á tilfinningunni að Æðsti strumpur hefði eitthvað gáfulegt til málanna að leggja núna…svo sem ekki verra að hlusta á hann en það sem við höfum þurft að hlusta á í gegnum tíðina eða það sem við hlustum á nú.

Bara rétt að nefna að áður en fólk talar um einhverjar duldar, pólitískar meiningar út frá Strumpum hvort sem um er að ræða litinn á þeim eða stjórnarfar í landi þeirra, þá eru þær ímyndaðar…Strumpar eru fyrir mér Strumpar og ekkert annað.

Viltu segja eitthvað? (4)


 
 

Grillgrind sumarsins

20. April 2009
Grillgrind fyrir nörda

Fyrir alla endurskoðendur, nörda og þá sem geta ekki hugsað sér að missa af Excel í sumarfríinu. Ef vel er að gáð, sjást bókstafir í láréttu línunni efst og tölustafir í lóðréttu línunni til vinstri… „’Skan…viltu skella kótilettunni í =SUM(C7+F20). Myndin er fengin af vef Artlebedev.

Viltu segja eitthvað?


 
 

Og hér verðum við…

19. April 2009
Kort sem sýnir hvar við verðum í London í maí - í Soho

….allan maí mánuð….Við fundum litla íbúð í Soho í London sem er með nettengingu (tel hana upp fyrst), þvottavél, þurrkara, litlu eldhúsi, rúmi, salerni og sturtu. Sem sagt allt sem við þurfum til að vera í mánuð. Það er einnig töluvert af líkamsræktarstöðvum í grenndinni sem við getum notfært okkur. Það ætti ekki að væsa um okkur heldur svona matarlega séð því uppáhalds heilsubúðin mín er í næstu götu, nóg er af góðum veitingastöðum þar sem allt er í boði, hvort sem maður er grænmetisæta eða vill bara hráan fisk í sushi…nefndu það, í London er hægt að finna staðinn. Starbucks er svo beint á móti íbúðinni sem liggur við lítinn garð í miðri Soho. Fram hjá þessum garði löbbuðum við nánast daglega á ferð okkar um borgina og vinnan hans Jóhannesar var í næstu götu. Við verðum því á heimaslóðum. Verst bara að við þurfum að koma heim aftur, hmmmm…….

Get ekki beðið eftir að komast í svolítið vor, heilsuvörur og ferska ávexti á góðu verði, skoða uppáhaldsbókabúðirnar mínar, uppáhalds eldhúsbúðirnar, borða á uppáhaldsveitingastöðunum mínum og bara “vera” í uppáhalds borginni minni…Við hlökkum allavega afskaplega mikið til að fara.

Viltu segja eitthvað? (2)


 
 

Clara kreppukokkur

14. April 2009

Fyrir þá sem hafa áhuga á heimilislegri matreiðslu með sparnaðarívafi, má skoða þættina hennar Clöru. Clara er fædd í ágúst 1918 og  man tímana tvenna!

Viltu segja eitthvað?


 
 

Páska “óglaðningur”

8. April 2009

Ég veit að ég er vond og á örugglega eftir að skemma páskana fyrir einhverjum…….en ég bara verð…….

Páskaegg Þetta er innihaldið í Nóa Síríus páskaeggi nr. 4
(athugið að þetta hefði alveg eins getað verið frá Góu, Bónus eða hvað þetta allt heitir. Ég er ekkert sérstaklega á móti Nóa Síríusi eða neitt slíkt):

Mjólkursúkkulaði (sykur, kakósmjör, nýmjólkurduft, undanrennuduft, kakómassi, ýruefni (sojalesitín), vanilla. Kakóþurrefni 35% að lágmarki). Sykur, glúkúsasíróp (úr hveiti), hert jurtafita, kakóduft, rúsínur, lakkrískjarni, möndlur, apríkósukjarnar, umbreytt sterkja (úr maís, kartöflum, tapíóka), maís, hafrar, hveiti, sýra (sítrónusýra), matarsalt, bindiefni (E-414), ammóníumklóríð, ýruefni (sojalesitín), ensím (invertasi), bragðefni, litarefni (E 100, E 102, E 104, E 120, E 122, E 160b, E 163, E 171, E 172), glansefni (matarolía, bývax). Getur innihaldið hnetur í snefilmagni. Myndin er af vef Nóa Síríuss (www.noi.is).

Innihaldið í páskaeggi CafeSigrun (c.a. nr 3):

Dökkt, lífrænt framleitt 70% súkkulaði með hrásykri, cashewhnetur, heslihnetur, apríkósur, döðlur, gráfíkjur rúsínur.  Eggið þarf maður reyndar að búa til sjálfur he he.

Viltu segja eitthvað? (7)


 
 

Ógeðsmatur

4. April 2009
30.000 hitaeininga samlokan

Jóhannes sýndi mér þessa síðu með óhollum mat í gær og ég var orðlaus. Ég hef aldrei….á ævinni…..séð jafn mikið safn af óhollum mat. Það ótrúlegasta var….ég gat ekki hætt að skoða, þetta var algjörlega morbid fascination út í gegn einhvers konar sjúklegur áhugi á viðfangsefninu þó það væri svona viðbjóðslegt. Ég skoðaði hverja einustu mynd….og trúði ekki mínum eigin augum. Kannski af því að mataræðið sem þarna um ræðir er svo langt, langt frá því sem ég þekki eða myndi tileinka mér. Hér er meðal annars boðið upp á 30.000 hitaeininga samloku (sjá mynd), hamborgara með hamborgara inn í, allt djúpsteikt sem hægt er að djúpsteikja (m.a. djúpsteikt quacamole????? og djúpsteikt kók og djúpsteiktir hamborgarar og meira að segja blóðmör) og beikon…fullt af beikoni, líka djúpsteiktu. Flest af þessu sýnist mér koma af skyndibitastöðum (og frá heimahúsum) í Bandaríkjunum en einnig eru sökudólgar frá Bretlandi. Það er líka ýmislegt ógeðfellt eins og kjöt með súkkulaði (þá er ég ekki að tala um mexikanskar mole súkkulaðisósur eða álíka…nei við erum að tala um eitthvað sætt og sóðalegt eins og bakon dýft í súkkulaði). Svo eru líka t.d. nammipizzur sem eru venjulegar pizzur en með sælgæti ofan á..og miklu sælgæti. Svo er líka alls konar vitleysa eins og mjólkurhristingur með barbeque sósu, pylsukleinuhringur með ostasósu og súkkulaðibráð og fleira….

Ég held að ég geti sagt að þetta sé ekki fyrir viðkvæma he he eða þá sem verður auðveldlega flökurt af ógeðslegum mat. Það er líka alveg á hreinu að vefurinn ber nafn með rentu.

Viltu segja eitthvað? (5)


 
 

Bogið reikningsdæmi

1. April 2009

Bjartsýni okkar Íslendinga er með ólíkindum. Ég get ekki annað en dáðst að henni.

Ég er alltaf að rífast yfir verðlaginu hérna…því það nær engri átt. Það munar gríðarlega á matvöru hér og í nágrannalöndum og allt of stórt hlutfall launa fer í mat (samt kaupi ég aldrei kjöt, eiginlega aldrei fisk, auðvitað aldrei vín, aldrei sælgæti, aldrei snakk/gosdrykki og í raun aldrei óþarfa).  Ég hugsa þetta oft í sambandi við veitingastaði og í raun allar verslanir líka. Ég er búin að reikna dæmið frá A-Ö og ég fæ ekki séð…ég fæ bara alls ekki séð, hvernig dæmið á að ganga upp hjá þeim sem gerast svo bjartsýnir að opna eitt stykki veitingahús eða verslun hér á landi.

Þú hlýtur að þurfa að geta keypt inn á lágvöruverði (ekki hægt á Íslandi því verðlagið er skelfing, meira að segja í heildsölum). Það er ekki einu sinni nóg því þú þarft að reiða þig á fjöldann til að reksturinn borgi sig. Gallinn er bara sá að fjöldinn er ekki til staðar hér á landi. Ætli þeir sem fá þá bráðsnjöllu hugmynd að opna t.d. veitingastað í miðbænum, hugsi málið til enda eða er það bjartsýnin ein sem ræður rækjum? Sest fólk virkilega niður með reiknivél og penna og gerir viðskiptaáætlanir….? Svona miðað við hvað Laugavegurinn er tannlaus þá einhvern veginn held ég ekki. Einhvers staðar las ég að verið væri að nota verslunarpláss á Laugaveginum í peningaþvætti. Ég hef ekki nógu mikið vit á svoleiðis málum til að geta staðfest slíkt (og myndi að sjálfsögðu aldrei eiga við um alla). Þeir sem bíta á jaxlinn og halda áfram í bjartsýniskasti þurfa oftar en ekki að taka lán með rekstrinum og eru auðvitað að borga með honum, hækka vörurnar upp úr öllu valdi til þess að reyna að rétta úr kútnum og að lokum koma færri viðskiptavini og miðbærinn missir aðra tönn. Þetta sér maður nánast á hverjum degi. Ég kalla Laugaveginn oft Innsetningu (Art Installation) því í hverri viku opna nýjar verslanir og þær hverfa hratt…svona eins og tímabundið „listaverk“.

Viltu segja eitthvað?