Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 3. september, 2010
 

Jólauppskriftir CafeSigrun 2008 komnar inn

Það kennir ýmissa grasa að þessu sinni og t.d. má hér finna hollari Sörur (eða CafeSigrúnur he he)…Franska súkkulaðiköku (guðdómleg), Asparssúpu, Vanilluís, Bláberja- og súkkulaðiís og margt fleira. Það er smá súkkulaðiþema enda eru jólin óneitanlega samtengd þessu frábæra hráefni sem inniheldur endalaust mikið af andoxunarefnum. Athugið þó að hægt er að nota carob í allar uppskriftir í stað súkkulaðis/kakós ef þið eruð viðkvæm/hafið ofnæmi fyrir kakóinu. Einnig má oft skipta út súkkulaði/kakó fyrir eitthvað annað í uppskriftum svo enginn þarf að örvænta. Ég vona að uppskriftirnar falli vel í kramið.

Efst frá vinstri: Sveskju- og cashewkonfekt, Súkkulaði- og möndlubitar (fudge), Súkkulaði,- pistachio,- og hafrabitar, Bláberja- og súkkulaðiís, Asparssúpa, Banana,- hafra,- og súkkulaðikökur, Kryddaðar hafra-, súkkulaði,- og rúsínukökur, Franska súkkulaðikakan hennar Lísu, Súkkulaðiávaxtakakan hennar Nigellu, Möndlukökur- með súkkulaðikremi, Sörur, Vanilluís

Sveskju- og cashewkonfekt
Súkkulaði- og möndlubitar
Súkkulaði,- pistachio,- hafrabitar
Bláberja- og súkkulaðiís
Asparssúpa
Banana,- hafra,- og súkkulaðikökur
Kryddaðar hafra-, súkkulaði,- og rúsínukökur
Franska súkkulaðikakan hennar Lísu
Súkkulaðiávaxtakakan hennar Nigellu
Möndlukökur með súkkulaðikremi
Sörur
Vanilluís




 

Viltu segja eitthvað?


 
 
Lisa Hjalt sagði:

Sigrún, Sigrún, Sigrún, hvað á maður að segja annað en að nú toppaðirðu alveg sjálfa þig!

Ég átti von á öllum kræsingunum með súkkulaðinu en ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég sá asparssúpuna. Er einmitt alin upp við það að fá asparssúpu á jólunum en geri hana samt aldrei sjálf. Nú verður bætt úr því hið snarasta.

Og ég þarf greinilega að gera CafeSigrúnur ;-)

Þúsund þakkir


 
 
Korinna sagði:

Sæl og takk innilega fyrir þetta.
Ég er einmitt farin að skoða uppskriftir þar sem ég byrja að baka 6. des. Það eina sem mér finnst skritið er að hafa hnetur í smjörkremi á sörunum, ætti ég reyni ekki að breyta því eitthvað.
En allt hitt litur rosalega vel út. nammi namm!


 
 
Sigrún sagði:

Takk Lísa mín :)

Korinna: Það er ekki bara skrítið heldur stórfurðulegt að nota hnetur í ‘smjörkremi’ en þar sem ég nota aldrei smjör verður maður að impróvisera :) Það má alltaf gera venjulegar Sörur ef maður fílar ekki þessar.


 
 
Fanney Dóra sagði:

Vá þú ert nú meiri snillingurinn! Mig langar bara að prófa allt saman! :) Takk fyrir að græja svona flottar uppskriftir fyrir okkur, þú ert æði!
Kveðjur frá Akureyrinni.


 
 
Elisabet sagði:

umm ekkert smá girnilegt,, sérstaklega franska kakan og sigrúnurnar,,,


 
 
Sigrún sagði:

Takk Fanney Dóra og takk Elísabet… :)


 
 
ingvi sagði:

vá…vá, þetta lítur svakalega vel út hjá þér.


 
 
stína sagði:

Takk fyrir þetta-hlakka til að prófa Sigrúnurnar og reyndar ýmislegt annað. Gaman að sjá meira hrátt hjá þér, maður er ekki alltaf í gírnum til að kynda ofn ef það er bara þörf og tími fyrir eina uppskrift. Kveðja Stína


 
 
oddný sagði:

guðdómlega girnilegt!


 
 
Sigrún sagði:

Takk Ingvi, Stína og Oddný :) Gott að fá klapp á bakið.


 
 
Fanney Dóra sagði:

Ég var að spá í einu, hvað heldurðu að pistasíugómsætlingarnir geymist lengi?


 
 
Anna Stína sagði:

yummi yummi eins og Larsen sagði … lítur allt óheyrilega vel út og bragðast örugglega enn betur ;-) Ætli ég/við prófum ekki bara … ALLT !! Er að spá í Sörum með hvítu súkkulaði – sjáum hvernig það gerir sig … kyss&knús frá Köben


 
 
Sigrún sagði:

Takk Anna Stína..þú ættir að geta notað kakósmjör í allt (eða hvítt súkkulaði) í staðinn fyrir kakó. Láttu mig ENDILEGA hvernig tekst til ef þú ferð út í svoleiðis framkvæmdir :)

Fanney Dóra: Pistachiobitarnir geymdust vel í ísskápnum í viku og ef þú bleytir ekki pistachio hneturnar geta þeir geymst í alveg 3-4 vikur (vatnið kemur enzínum af stað)….Þú getur líka alltaf fryst bitana og tekið einn og einn út…þannig geymast þeir í alveg 3 mánuði…í góðu boxi.


 
 
Melkorka sagði:

Halelúja!


 
 
Fanney Dóra sagði:

Glæsilegt! Takk fyrir þetta :D


 
 
Elva sagði:

Alltaf sami snillingurinn, þúsund þakkir mín kæra!