
Kjúklingabaunasúpa
Hollustueiginleikar: Kjúklingabaunir innihalda trefjar sem geta lækkað kólesterólið (eins og flestar baunir reyndar). Trefjarík fæða stuðlar líka að því blóðsykurinn haldist jafn. Kjúklingabaunir innihalda einnig járn og Manganese er mikilvægt fyrir ensímin sem við notum til orkuframleiðslu og er einnig mikilvægt fyrir varnir líkamans þ.e. í formi andoxunarefna. Kjúklingabaunir eru sérlega góðar fyrir grænmetisætur vegna járnsins sem og próteinsins sem þær innihalda. Kjúklingabaunir innihalda einnig fólinsýrur sem eru sérlega mikilvægar fyrir vöxt fóstra hjá ófrískum konum. Fólinsýrur eru einnig góðar fyrir húðina sem og framleiðslu á rauðum blóðkornum. Fólinsýrur eru einnig mikilvægar fyrir heilbrigðar taugar og geta hindrað hrörnun í heila eins og t.d. Alzheimers. Ef þið eruð þreytt, pirruð, þung í lund, gleymin, sofið illa, þreytt í vöðvum þá er líklega að ykkur vanti fólinsýrur eða eruð orðin leið á kreppunni…annað hvort he he. Blaðlaukur og hvítlaukur eru hollir fyrir okkur líka, innihalda t.d. C vítamín, andoxunarefni, trefjar o.fl…..
Kjúklingabaunasúpa er alveg hræðilega ódýr og góð súpa og frábær bæði fyrir þá sem vilja einfaldan kvöldmat og t.d. námsmenn sem vilja eitthvað hollt, seðjandi og sérlega ódýrt. upplagt er að baka brauð með súpunni. Það er hagkvæmast að kaupa kjúklingabaunir í poka og leggja í bleyti í 24 tíma en annars má kaupa í dós. Yfirleitt eru kjúklingabaunir ekki með neinum viðbættum aukaefnum (meira að segja þessar ódýrustu í dós) en geta innihaldið svolítið salt.
Fyrir 2
Aðferð:
Gerði einmitt tvöfalda uppskrift af þessari í gær handa fjölskyldunni og er það ekki í fyrsta sinn. Börnin elska hana. Ég þarf eiginlega að ráða þjón sem sér bara um það að rífa meiri parmesan ost út á diskana þeirra því þau vilja meira og meira af honum (nýsköpun í kreppunni?!!!).
Sveitabrauðið þitt er frábært með þessari.