Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 3. september, 2010
 

Ódýra uppskrift vikunnar #2: Eggjadropa- og maískornasúpa

Eggjadropa- og maískornasúpa

Eggjadropa og maískornasúpa

Hollustueiginleikar:Þessi súpa er bæði létt og fljótleg. Eggjahvítur eru auðvitað mjög próteinríkar og góðar fyrir eiginlega alla held ég bara en sérstaklega fyrir þá sem eru í líkamsrækt eða að byggja upp vöðva. Svo eru maískorn alveg ótrúlega holl þó þau fái yfirleitt litla athygli. Þau eru stútfull af B vítamínum og m.a. fólinsýrum. B5 vítamínin í þeim eiga að hjálpa til við að eyða streitu en einnig eru B1 og B3 vítamín til staðar, allt gott fyrir frumur og orkuna sem við þurfum á að halda. Maískorn eru einnig trefjarík og hjálpa því til við að sporna gegn krabbameini í ristli. Einnig eiga maískorn að lækka of háan blóðþrýsting. Guli liturinn í maískornum er carotenoid sem þýðir að það er andoxunarefni og á að hjálpa til við að sporna gegn brjósta- og lungnakrabbameini. Einnig er þetta andoxunarefni gott fyrir augun og sjónina. Sem sagt holl súpa en um leið afskaplega ódýr og auðveld. Þessa súpu gerði ég afskaplega oft þegar ég var í námi og það má bæta fleiru út í hana til að gera matarmeiri t.d. krabbakjöti, grænum baunum (ég er ekki að tala um Ora baunir), rauða papriku (kjúklingakjöt ef þið borðið svoleiðis), rækjur og fleira. Bætið við soði/vatni ef þið notið meira af öðru hráefni.

Fyrir 2-3

Innihald:

  • 250 gr maískorn (án viðbætts sykurs)
  • 2 eggjahvítur
  • 1 tsk sesamolía (má sleppa)
  • 1,5 stórir gerlausir grænmetisteningar frá Rapunzel
  • 6 dl sjóðandi vatn
  • 2 msk maísmjöl (þ.e. sósujafnari. Má líka nota arrowroot)
  • 1 msk tamarisósa (eða soyasósa) til að bragðbæta ef þarf
  • 1 tsk agavesíróp

Aðferð:

  1. Hrærið eggjahvítuna vel.
  2. Blandið maísmjöl saman við 1-2 msk af vatni hrærið mjög vel þangað til kekkirnir eru horfnir.
  3. Hellið sjóðandi vatni yfir grænmetisteningana (í potti).
  4. Hleypið suðunni upp og blanda maískornunum saman við.
  5. Setjið agavesírópið út í.
  6. Látið malla (ekki sjóða) í 15 mínútur, ekki með lokinu á.
  7. Blandið eggjahvítunum saman við maísmjölsblönduna og hrærið vel.
  8. Hellið eggjahvítu/maísmjölsblöndunni út í, í lítilli, en stöðugri bunu og hrærið í súpunni allan tímann (án þess að sjóði í súpunni). Eggjadroparnir þykkna og verða að mjóum, hvítum ræmum. Gætið þess að ekki sjóði í súpunni.
  9. Setjið sesamolíuna útí.
  10. Smakkið til með tamarisósunni, ekki víst að þurfi.


 

Viltu segja eitthvað?


 
 
Elva sagði:

Rosalega girnileg uppskrift :-) Annars er ég orðin svo tilætlunarsöm og frek að ég er farin að bíða rosa spennt eftir jólauppskriftum. Eitthvað segir mér að þú eigir eftir að toppa þig núna í ár!


 
 
Kristín sagði:

Sæl! ,,Takk fyrir matinn-hann var góður” Langaði bara að leyfa þér að heyra hvað hljómar oft hjá mér þegar ég hef prófað nýtt af vefnum þínum-veðja á að það komi hjá börnunum þegar þau smakka þessa súpu. Takk fyrir þrautseigjuna og hugmyndaflugið. Kveðja Kristín


 
 
Sigrún sagði:

Takk Elva mín…er búin að opna Jólaflokkinn (lét undan þrýstingnum frá þér ha ha) :)

Kristín: Innilegar þakkir fyrir fallega kveðju, þykir óskaplega vænt um hana.


 
 
Melkorka sagði:

Frábær hugmynd að vekja athygli á ódýru uppskriftunum með þessum hætti, var einmitt að kaupa maísbaunir og grænmetisteninga áðan.


 
 
Signý sagði:

Hæ Sigrún mín,
Ég ætla að prófa þessa uppskrift í kvöld! Leist svo vel á hana þar sem ég elska gular baunir! :) Fékk annars að heyra þvílíkar lýsingar á lime-pie-i og guðdómlegu konfekti í gær frá heitasta aðdáenda þínum, henni Elvu! :) Hlakka til að kíkja á jólauppskriftirnar og finna mér eitthvað girnó til að prófa! Kær kveðja, Signý


 
 
Sigrún sagði:

Takk Signý mín :)

Aumingja Elva…hún hefur þurft að þola misgóðar tilraunir frá mér í öll þessi ár…hún hefur aldrei kvartað..ekki einu sinni þegar hún borðaði metersþykkan pizzabotn og rennblaut bananabrauð :)

Láttu mig vita ef þú vilt uppskrift af límónukökunni, hún er ekki komin á vefinn :)