Forsíđa CafeSigrun.com
Fara beint í leiđarkerfi vefjarins
Í dag er 30. júlí, 2010
 

Skólafréttir frá Uganda

Fékk tölvupóst áđan frá lćrlingnum (kalla hann E) í Uganda (ţiđ muniđ eftir honum er ţađ ekki....honum sem seldi geiturnar fyrir restinni af skólagjöldunum.....). E tilkynnti mér sem sagt ađ hann vćri kominn í skólafrí og ađ hann ćtlađi ađ senda mér einkunnirnar sínar. Hann veit ađ áframhaldandi fjárframlög velta á einkunnunum svo honum var mikiđ í mun ađ senda mér ţćr sem fyrst. Nú vona ég bara ađ niđurstöđurnar séu góđar svo drengurinn geti útskrifast međ pompi og prakt. Ég var svo búin ađ lofa honum tölvunámskeiđi í útskriftargjöf ef vel gengur og öll fjölskyldan er mjög spennt yfir ţví....er mér sagt (á milli bćna í tölvupóstum). Ţá er nú von til ađ hann geti keypt fleiri geitur og jafnvel fengiđ vinnu. Ég nenni ekki ađ vera ađ útskýra fyrir honum ađ íslenska krónan sé orđin verđlaus og ađ Íslendingar geti ekki lengur keypt sér flatskjái á viđ fótboltavöll, 400 fm einbýlishús, Range Rovera, einkaţotur o.fl., o.fl.....hef grun um ađ hann myndi hrista hausinn. Held nefnilega ađ hann sé ánćgđur bara međ ađ fá mat ţann daginn. Lćt ykkur vita hvernig honum gekk :)

 

Viltu segja eitthvađ?


 
 
Elisabet sagđi:

Gaman ađ fá ađ fylgjast međ.