Jæja þá erum við stödd í London...eins og við sjáum af bleikum hanakömbum, dansandi, trommandi, hempuklæddu Hari Krishna strákunum, klæðskiptingum í háum hælum, fólkinu sem er að flýta sér alls staðar í jakkafötum og drögtum, byggingunum sem eru svo stórar að þær gætu hýst alla Reykvíkinga, og allri þeirri flóru fólks sem hér er af öllum stærðum, gerðum, litum o.fl. Við erum komin "heim".
Námskeiðið gekk þrumuvel og ég var vel undirbúin. Það er gaman að labba út úr einum stærsta banka heims og finna að maður hafi staðið sig vel. Námskeiðið var reyndar í norð-vestur landsins og ég gisti á herragarði sem var byggður 1653 og Bítlarnir gistu á þegar þeir voru á svæðinu. Veggirnir voru metersþykkir og hlaðnir og innviðið eins og völundarhús með mjóum og löngum göngum. Gluggarnir voru litlir með blýrömmum (eins og á steindum gluggum) og það voru hestar á beit fyrir utan. Óskaplega fallegt, eins og á málverki.
Nú er ég í London og Jóhannes líka. Þarf að halda smá námskeið fyrir fyrirtækið sem ég er að vinna fyrir hér í UK í dag en svo ætlum við barasta að tsjilla. Við fórum á
Neal's Yard í gær að borða....uppáhaldsheilsustaðinn okkar. Í dag erum við að hitta gamla skólafélaga, nágranna, vinnufélaga og fleiri vini. Nóg að gera. Ég fór í heilsubúðir í gær. Best að segja sem minnst um það....ykkar vegna :)