Soyage Non-Dairy Cultured Soya Dessert frá GranoVita Deluxe- Strawberry
Tillaga frá: Elísabetu og Hörpu
Mjög líklega ljótustu umbúðir sem til eru af nokkuri vöru á markaðnum. En svo sem...dæmum ekki bókina af kápu hennar er alltaf sagt. Það jákvæða hér er að engin litarefni eða aukaefni eru í þessari sojajógúrt og náttúrulegu litarefnin eru úr rauðrófu. Samt pirrar mig að það er talað um flavouring (bragðefni) og hvergi talað um hvort bragðefnið er náttúrulegt eða ekki. Einnig er hellingur af alls kyns gúmmíi og þó að það sé ekki hættulegt finnst mér aldrei gaman að borða afurð sem inniheldur álíka mikið gúmmí og dekk (ok kannski ekki alveg sanngjarnt...en þið fattið hvað ég meina). Sumir hafa líka ofnæmi/óþol fyrir t.d. Xanthan gúmmíi. Xanthan er stundum notað í glúteinlausan bakstur (til að gera deigið teygjanlegra.... er einnig notað í eggjalíki, tannkrem o.fl.). Þetta er afar fitulítil jógúrt eða aðeins 0,1 gr af fitu sem er eiginlega lygilegt (enda bara gúmmí he he). Sykur er ekki notaður (frábært) heldur er notaður eplasafi og jarðarber. Finnst svolítið skrítið þetta
strawberry fruit preperation...veit ekki alveg hvað það þýðir en vonum að þýði bara eitthvað jákvætt he he. Eitt sem er verulega slæmt...hvergi er talað um hvort sojað er
NON-GM (óerfðabreytt) og ekki er heldur talað um
Crop Friendly Soja eða álíka. Mér er nefnilega meinilla við að kaupa sojavörur frá stöðum þar sem skógum er rutt niður og villt dýr missa heimili sín. Allt of algengt. Eins er mér illa við að kaupa sojavörur frá USA þar sem megnið af sojauppskerunni er erfðabreytt. Allt í allt alveg ágæt sojajógúrt en með sína vankanta þó.
Innihaldslýsing:
Water, apple juice, strawberry fruit preperation (strawberries (3%), thickener (modified maize starch), colour (beetroot red), flavouring, acidity regulators (citric acid, trisodium citrate), stabiliser (guar gum), antioxidant (ascorbic acid), soya protein (2%), stabilisers (guar gum, xanthan gum, locust bean gum).
Glúteinlaust: Já
Mjólkurlaust: Já
Hnetulaust: Já
Næringargildi í 100 gr:
Orka (kcal): 77
Prótein: 2,4 gr
Kolvetni: 16,6 gr
Þar af sykur: ekki tekið fram
Þar af sterkja: ekki tekið fram
Þar af trefjar: ekki tekið fram
Fita: 0,1 gr
Þar af mettuð fita: ekki tekið fram
Þar af einómettuð: ekki tekið fram
Þar af fjölómettuð: ekki tekið fram
Transfita: ekki tekið fram (en varla mælanleg)
Óhollustueinkunn: 6,0 (10 er hollast)