Nestle er vörumerki sem ég nota helst ekki. Þeir eru einn af þessum risum sem eiga heilan helling af minni fyrirtækjum. Flest þeirra framleiða óhollustu þannig að Nestle á drjúgan þátt í að bjóða upp á drasl og óhollustu. Þeir mæla heldur ekki á móti slæmri meðferð á dýrum (en þeir nota mikið af mjólkurvörum). Þeir sem hafa lesið Fast Food Nation vita hvað ég meina. Ef þið hafið ekki lesið hana...mæli ég með henni. Svo finnst mér eitthvað rangt við að sama fyrirtæki framleiði hundamat og kakó he he. Fitness morgunkornið þeirra er svo sem ekki það versta sem til er....í samanburði við til dæmis Special K frá Kellog‘s enda hefur Nestle lækkað hlutfall sykurs um 25% eins og stendur á pakkanum. Samt sem áður er voða lítið annað í þessu morgunkorni en hveiti, hrísgrjón og sykur. Takið eftir því að talið er upp sykur, frúktósi, síróp og maltextrakt....allt er þetta einhvers konar sykur. Það kemur reyndar á óvart að „aðeins“ 12,8% séu af sykri en ég bjóst við meira. Þó ber að hafa í huga að það er afar hátt hlutfall kolvetnis en t.d. er líklegt að hrísgrjónin sem notuð eru séu hvít og þar með er hærra hlutfall af einföldum kolvetnum en er hollt fyrir mann að neyta á morgnana. Morgunkornið er fitulítið og það fer alltaf jafn mikið í taugarnar á mér þegar ekki er tekið fram hlutfall af einómettuðum og fjölómettuðum fitusýrum. Ekki er heldur tekið fram hvort notaðar séu transfitusýrur, því miður. Þetta morgunkorn er örugglega ekki það versta á markaðnum en heldur ekki það besta. Minn morgunmatur er alltaf heimatilbúið muesli en í þessum tilbúna/sykraða morgunkornsheimi er Nestle Fitness líklega skárst.
Innihaldslýsing:
Fullkorn av vete/hvede (47,9%), ris (41,7%), socker, oligofruktos, sirap/sirup, maltextrakt (korn/byg), salt, surhetsreglerande middel (trinatriumfosfat), antioxidationsmedel (E306).
Glúteinlaust: Nei
Mjólkurlaust: Nei
Hnetulaust: Já (en með varnarorð um hnetusmit vegna annarrar framleiðslu)
Næringargildi í 100 gr:
Orka (kcal): 351
Prótein: 8,2 gr
Kolvetni: 76,3 gr
Þar af sykur: 12,8 gr
Þar af sterkja: ekki tekið fram
Þar af trefjar: 7,3 gr
Fita: 1,4 gr
Þar af mettuð fita: 0,4 gr
Þar af einómettuð: ekki tekið fram
Þar af fjölómettuð: ekki tekið fram
Transfita: ekki tekið fram
Óhollustueinkunn: 4,5 (10 er hollast)
það er ekki smá sorglegt að maður getur ekki lengur keypt vörur þar sem helv. nestlé er búið að kaupa það! eins og Caro kaffi eða mövenpick ís. Ég las viðtal við einhvern nestlé gaur um daginn og hann sagði að allar vörur sem framleitt eru verða bætt á einhvern hátt, semsagt vítamínbætt, steinefnisbætt og ég veit ekki hvað bætt. í staðin fyrir að leyfa lítlum verksmiðjum að framleiða gæðavörur sem eru góðar eins og þær eru án neinum bætiefnium. Algjört bjáni þessi karl. Afsakið orðabragðið, en ég skil ekki svona fólk og það gerir mest lítið að reyna að fá mig til þess að skilja það.
Ja er svosem ekkert hissa,finnst alltaf að Nestle eigi bara að framleiða eithvað sem er óholt eins og flestir þessir risar.Allavega takk fyrir og ég held þá bara áfram með minn hafragraut
kveðja Bogga