Já góð hugmynd…það er reyndar einn hópur sem heitir íslenskar grænmetisætur sem þú getur skráð þig á, á Facebook, ég setti einmitt tengilinn að myndbandinu þangað.
Ég spjallaði við Júlíus bónda á Tjörnesi um hamingjusamar hænur og það er ekkert því til fyrirstöðu að rækta þær (t.d. hjá honum) en það getur enginn slátrað þeim því það þarf einhverja sérstaka vottun (sem sláturhúsin hafa engan metnað í að fá sér)….glatað.
mér finnst svo flott að þú ert aldrei að gefast upp! mig langar mikið í hamingjusamar hænur þar sem til eru hamingjusöm egg ættu einnig að vera til þannig hænur. Ég borða stundum kjöt en helst lambakjöt og einnig borða ég fisk. Ég var lengi grænmetisæta og einnig vegan en ég á að viðurkenna að það fór frekar illa í mig.
Ég var að spá hvort gagnlegt væri að stofna samtök eða grúbbu á facebook til að ræða þessu mál þar en ekki endilega á einkablogginu þínu. Ef við gerum þetta saman og fáum fleiri til liðs við okkur gætum við kannski náð markmiðum okkur um betra meðferð búfés hér á landi.
Lena:
Það er algengur misskilningur að til sé ein “tegund” af grænmetisætum (við erum bara ekki komin lengra á Íslandi en það að flokka alla sem borða ekki kjöt í einn flokk”.
Erlendis er talað um:
Vegetarian=Grænmetisætur
LactoVegetarian=Grænmetisætur sem borða mjólkurvörur
OctoVegetarian=Grænmetisætur sem borða egg en ekki kjöt né fisk
Pescetarian=Grænmetisætur sem borða fisk.
Semi-vegetarian=Grænmetisætur sem borða aðallega grænmeti en stundum kjúkling og fisk (ekki rautt kjöt)
Vegan=Jurtaætur sem borða ekki neinar dýraafurðir (ekki heldur gelatin eða hunang) og nota engar dýraafurðir t.d. í húsgögn, fatnað o.fl.
Þú myndir flokkast sem pescitarian miðað við þetta. Erlendis má kaupa fisk sem er organic og free range en eins og með allt annað eru Íslendingar langt á eftir. Auðvitað er alltaf best að fara út með veiðistöng og fiska í soðið en það er því miður ekki alltaf hægt. Þá er betra að kaupa viðurkenndar vörur af þeim sem fara vel með dýrin. Til dæmis er bleikjan frá Fagradal þannig (skilst mér).
Er maður grænmetisæta ef maður borðar fisk? Ég sjálf borða nefnilega ekki kjöt en borða fisk. Og vil því ekki kalla mig grænmetisætu því fiskur er jú dýr, og því miður þá eru fiskar líka að fá hrottalega meðferð..
Langar alltaf ad gerast vegan, en það er bara meira en að segja það… :/
Úff – skelfilegt að sjá meðferðina á dýrunum. Las mjög svipaðar sögur í Skinny bitch bókinni. En ef við hugsum um verksmiðjuframleidda kjötvöru þá ætti þetta ekki að koma á óvart og hér innanlands eru sláturdýr flutt langar leiðir. Takk fyrir frábæra síðu Sigrún og að taka upp svona umræðu. Fer alltaf og skoða uppskriftirnar þínar og hugleiðingar þegar mig vantar innblástur. Kveðja, Ása
Elísabet: Almennt er aðbúnaður dýra mun betri ef um er að ræða lífræna ræktun en það þarf þó ekki að vera samasemmerki á milli lífrænnar ræktunar og dýra sem eru ‘hamingjusöm’ (free range). Það er allt betra en hefðbundin ‘verksmiðjuframleiðsla’ á dýrum en til að vera alveg örugg er best að kaupa bæði “free range” og organic. Stundum eru afurðir með stimpil eins og “animal welfare standard” eða álíka og það kemur í staðinn fyrir “free range” þar sem það á við.
mér finnst þetta hræðinlegt. ég ætla að vona að meðferðin á dýrum hér i þýskalandi þar sem ég bý er ekki svona.
það er þó ekki farið svona með dýrin sem eru lífræn ræktuð, eða hvað?
Snilldarkenning Jóhanna…:)
Eva ég þarf að fara að kaupa bókina Skinny Bitch bókina…er alltaf á leiðinni.
OMG! Ég fór nú bara að gráta! Þetta er alveg hræðilegt!
Grimmdin… ég á bara ekki orð
…
Ég heyrði eina fróðlega kenningu um helgina. Kanar eru þekktir fyrir að vera háskælandi yfir öllu (sbr. í spjallþáttum) – það er kannski ekkert skrítið þar sem kjötafurðirnar sem þeir borða eru stútfullar af hormónum og ógeði! Það hlýtur að valda einhverri hormónabrenglun hjá neytandanum!
Jesús, tetta er alveg hrædilegt!! og ég er svo sammála tér!! …tessu er einmitt lýst vel í skinny bitch bókunum sem ad ég benti tér á!! Takk fyrir gott blogg, ísland tarf á fleirra fólki eins og tér ad halda
…tad fólk virdist bara oft flytja úr landi
hehehe