JÓGÚRTRÚSÍNUR!!!
Þó að margir keppendur væru álitlegir vinningshafar var í mínum huga einn mjög sterkur sigurvegari og það kom mér ekki á óvart þegar ég var að fara yfir listann hversu lága einkunn jógúrtrúsínurnar höfðu fengið...
aðeins 0,5 (10 er hollast). Jógúrtrúsínur sem þessar eru skelfilegt fyrirbæri. Það er allt í þessari vöru sem maður ætti að forðast, litarefni, bragðefni, gríðarlega hátt hlutfall sykurs og fitu og allt of hátt hlutfall mettaðrar fitu, transfitu o.fl. Ég ætla hér að rifja upp umsögnina:
Jógúrt + rúsínur er í hugum margra góð blanda og jafnvel holl...rúsínur eru jú hollar og jógúrt er líka ágætlega holl, ósykurbætt og lífræn. Það er samt alveg með ólíkindum hversu óholla er hægt að gera þessa tvennu. Það eru ekki einangis svimandi há hitaeiningatala í þessari afurð heldur er LÍKA mikil fita OG mikill sykur. Heil
20 grömm af mettaðri fitu (enda er notuð hert jurtaolía að hluta) og
57 GRÖMM af sykri! Svo er sykurinn svolítið falinn því að maíssíróp, tapioca dextrín og maltódextrín er allt hluti af sykri þó hann sé ekki endilega hvítur. Maltódextrín getur innihaldið glútein svo það er ekki ráðlagt fyrir þá sem hafa glúteinofnæmi að neyta þessarar afurðar. Það besta er að framan á pakkanum er auglýst að jógúrtrúsínurnar séu ARTIFICIALLY FLAVOURED! Svona eins og það sé eitthvað til að gleðjast yfir....
Innihaldslýsing:
Jógúrthúð með vanillubragði (73%) (sykur, pálmkjarnaolía hert að hluta, léttmjólk, léttjógúrt, mysa, litarefni (titaníum dioxíð), sojalesitín, vanilla), rúsínur (27%) húðaðar með sojaolíu hertri að hluta og bómullarfræolíu, maíssíróp, tapioca dextrín, maltódextrín.
Glúteinlaust: Nei (en glútein getur leynst í maltódextríni)
Mjólkurlaust: Nei
Hnetulaust: Já
Næringargildi í 100 gr:
Orka (kcal): 485
Protein: 7 gr
Kolvetni: 62 gr
Þar af sykur: 57 gr
Fita: 23 gr
Þar af mettuð fita: 20 gr
Þar af einómettuð: ekki tekið fram
Þar af fjölómettuð: ekki tekið fram
Transfita: (ekki tekið fram en hert olía þýðir transfita og líklega eru um 3 gr af transfitu)
Óhollustueinkunn: 0,5 (10 er hollast)
Ég vona að enginn notandi þessa vefjar kaupi nokkurn tímann þessa vöru...mér þykir of vænt um ykkur......En hvað á maður að borða í staðinn? Ekki getur maður velt rúsínum upp úr jógúrti og látið þorna! Best er að sleppa þessari vöru alveg..gleyma því að hún hafi nokkurn tímann verið til...svona eins og maður gerir með lélegan kærasta. Mun betra er að borða bara hreinar rúsínur eða döðlur og kannski saxa gott lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri með til að maula. Einnig má gera hollt konfekt o.fl.
Hér eru 3 efstu vinningshafar í Óhollustukeppni CafeSigrun:
1. Sæti: Jógúrtrúsínur
Óhollustueinkunn: 0,5
2. Sæti: Bac-Os frá Betty Crocker
Óhollustueinkunn: 1,5
3. Sæti: Kellog‘s Special K orkubiti
Óhollustueinkunn: 2,0
Hér eru svo þeir keppendur sem lentu í næstu sætum:
4. sæti: Knorr bollasúpa (Minestrone „grænmetissúpa“)
Óhollustueinkunn: 2,5
5. sæti: Batchelors Savoury Chicken Flavour Rice
Óhollustueinkunn: 3,0
6. sæti: Honey Nut Cheerios
Óhollustueinkunn: 3,5
7. sæti: Haust kex
Óhollustueinkunn: 4,0
8. sæti: RITZ kex
Óhollustueinkunn: 4,0
9. sæti: Sólþurrkaðir tómatar (frá Sacla)
Óhollustueinkunn: 4,5
10. sæti: Tortilla vefjur
Óhollustueinkunn: 5,0
Ég þakka drengilega og tvísýna keppni (oft á köflum æsispennandi) :) og nú er bara að senda mér ykkar tillögur sem ég mun taka fyrir hvern sunnudag næstu 10 vikurnar!!!