Margir hafa fylgst með Óhollustusamkeppni CafeSigrun og miklu fleiri spenntir yfir henni en ég átti von á. Ég hef fengið töluvert margar fyrirspurnir frá fólki sem er að spyrja um hinar og þessar matvörur. Gott að umræðan vakni aðeins og fólk kaupi ekki í blindni það sem sett er í hillur matvöruverslana...enda er um að ræða frumskóg sem ekki er auðvelt að fara í gegnum og neytendur allt of oft plataðir.
Úrslit í Óhollustusamkeppni CafeSigrun verða sem sagt kunngjörð á sunnudaginn þannig að þið getið kíkt hingað inn til að skoða
Ólympíumeistarann (nei ég meina
Óhollustumeistarann)... :)
En það sem mig langaði að stinga upp á við ykkur er að hafa smá framhald á keppninni......þannig að þið getið sent inn vöru fyrir mig til að fjalla um? Hvernig líst ykkur á það?
Þátttökuleiðbeiningar eru þessar:
- Sendið mér tillögu að vöru sem á að fjalla um. Ef ekki er nægilega skýrt um hvaða vöru er að ræða get ég ekki fjallað um hana (Kellog's er ekki nóg ef um er að ræða 'Kellog's Special K til dæmis).
- Varan verður að vera erlend (nenni ekki að lenda í rifrildi við íslenska framleiðendur.....sem mig langar samt svoooo að taka í bakaríið).
- Ég sé um að taka myndina og nálgast allar aðrar upplýsingar sem þarf.
- Ekki er víst að ég geti tekið fyrir allar vörur en ég mun svara öllum bréfum.
- Ég mun velja vöru til að fjalla um vikulega.
- Sendið tillögu að vöru í gegnum fyrirspurnarformið á vefnum mínum.
- Takið fram hvort þið viljið að nafn sendanda birtist ekki með vörunni (t.d. Gunna frá Reykjavík sendi tillögu að vöru X).
- Það er lang skemmtilegast ef þið finnið vöru sem flestir halda að sé holl en er það í raun ekki. Það vita t.d. allir að Snickers er óhollt (og óþarfi að tala um það) en ekki svo margir vita að jógúrthúðaðar rúsínur eru álíka óhollar...svo dæmi sé tekið.
Kíkið nú aftan á innihaldslýsingu matvöru í búðinni og takið þátt!!! Það eru engin verðlaun (nema að vinna Óhollustu-notenda-samkeppni CafeSigrun auðvitað).