[/caption]
Það vita flestir að RITZ kex er ekkert hollustukex. Samt borða það mjög margir án samviskubits. Oft hef ég heyrt "Já en hvað annað á að borða í veislum undir ost og svoleiðis"? Svarið er eiginlega "allt annað en RITZ kex". RITZ kix er alveg furðulega hitaeiningaríkt miðað við hversu lítið er í því en megnið af hitaeiningunum liggur í fitu og sykri. Það er nefnilega svimandi hátt hlutfall fitu í þessu kexi sem lítur annars sakleysislega út. Einnig er of hátt hlutfall fitunnar (tæpur helmingur) mettuð fita sem er ekki góð fyrir okkur og sest nánast beint inn í æðarnar...RITZ kex með feitum osti er sem sagt nokkuð góð leið til að stífla pípulagnirnar í okkur. Þó að ekki komi margt í staðinn fyrir RITZ kex væri samt betra að kaupa spelt hafrakex, heilhveiti hafrakex (ekki HAUST kex samt he he) eða eitthvað annað gott kex úr heilsubúð. Í heilsubúðum og heilsudeildum stærri matvöruverslana er meira að segja hægt að fá góð kex undir osta.
Innihaldslýsing:
Wheat Flour, Vegetable Oil, Sugar, Raising Agents (Ammonium Bicarbonate, Sodium Bicarbonate, Disodium Disphosphate), Salt, Glucose Syrup, Malt Flour
Glúteinlaust: Nei
Mjólkurlaust: Já
Hnetulaust: Já
Næringargildi í 100 gr:
Orka (kcal): 493
Prótein: 7 gr
Kolvetni: 57,5 gr
Þar af sykur: 6,6 gr
Fita: 26,1 gr
Þar af mettuð fita: 12,3 gr
Þar af einómettuð: ekki tekið fram
Þar af fjölómettuð: ekki tekið fram
Transfita: ekki tekið fram
Óhollustueinkunn: 4,0 (10 er hollast)
Já…fólki finnst oft best að loka augunum og skoða ekki innihaldslýsingar…kannski bara best ha ha..hætta þessu veseni bara
Nei annars það kemur aftan að fólki seinna (svona heilsufarslega).
Já ég skil. Fólk segist oft ekki borða heiti því það væri verra og vont. Það gildir svolítið það sama hér en um Ritz kexið. Ef maður veit ekki hvað er í þessu þá finnst manni það gott. Alveg öfugt og hjá okkur!
Hæ Korinna
Já vandamálið er bara að fólk er svo misjafnt með hvað því þykir gott og þess háttar svo það er svolítið erfitt að segja að fólk eigi að kaupa vöru A en ekki B (ég hef þó reynt stundum). Svo er bara ekkert sem kemur í staðinn fyrir Ritz kex og þá er erfitt að tilgreina einhverja ákveðna vöru án þess að fólk segi “Já en þetta er ekkert líkt Ritz kexi” (og sendir mér svo skammarbréf) fattarðu. Þess vegna finnst mér betra að benda fólki á að fara í þessar búðir og skoða sjálft hvað kæmi til greina og prófa sig áfram. Ef engin vara er til sem er lík vörunni sem ég er að tala um þá er nefnilega erfitt að mæla með annarri hliðstæðri vöru. Það er ekki hægt að baka neitt sem er svipað Ritz kexi og því engin uppskrift til sem ég get bent ykkur á!
“Í heilsubúðum og heilsudeildum stærri matvöruverslana er meira að segja hægt að fá góð kex undir osta.”
Mér finnst þetta vera spennandi keppni en það væri gott að fá ábendigar um vörur sem maður gæti keypt í staðin eða hvernig maður gæti bakað gott kex undir ostinn sjálf :-/