Kellog‘s Special K orkubiti

Þegar ég var að vinna í London var mjög algengt að fólk á skrifstofunni væri með 1-2 Kellogs Special K orkubita með sér (enda auglýst sem heilsuvara). Ég ætla að segja ykkur hér með að það væri alveg eins gott að fara í sjoppuna og fá sér bland í poka. Virkilega góð markaðsherferð og að þessi vara sé auglýst sem eitthvað hollt er fáránlegt en neytendur láta blekkjast, líka á Íslandi. Morgunkornið (Special K) er engu skárra en ég verð að segja að ég lét líka blekkjast hérna í gamla, gamla daga. Þetta er auðvitað alveg fáránlega bragðgott (enda heeellingur af sykri) og ég trúði því að morgunkornið væri hollt. Það skiptir engu máli hvað hlutirnir eru "vítamínbættir" því 35 grömm af sykri í 100 grömmum er ROSALEGT. Það kemur ekkert í staðinn fyrir alvöru vítamín úr matnum okkar og við ættum ekki að láta blekkjast yfir viðbættum vítamínum í því sem er óhollt. Ef matvara er nægilega holl þarf ekki viðbætt vítamín....er það nokkuð?
Þessir bitar eru ekki einu sinni próteinríkir (sem hollir orku-hnetubarir eru með jafnmörgum hitaeiningum). Hefur ykkur aldrei fundist þessir bitar of góðir til að vera sannir (hef stundum heyrt þá lýsingu)???? Það er svo innilega satt. Ég tek aftur fram að það sama á við um morgunkornið Special K. Varðandi svona orkubita er 100 sinnum sniðugra að búa til sína eigin eins og t.d.
Flap Jack (og mjög einfalt líka). Maður getur fryst þá og tekið með sér í vinnuna eða skólann og þeir innihalda helling af
alvöru vítamínum, próteinum, flóknum kolvetnum o.fl.
En aftur að þessum svokölluðu orku-vítamínbitum frá Special K. Þeir innihalda meðal annars bragðefni (jarðaberjabragð og eitthvað furðulegt með jarðarberjabragði sem á að vera ávöxtur), helling af sykri auðvitað en sykurinn heitir ýmsum nöfnum (til að rugla ykkur) eins og Sugar, Glucose Syrup, Barley Malt, Fructose, Sugar (aftur), Dextrose, Sugar (aftur). Sorbitol og Glycerol er einnig notað en þessi efni eru sætuefni og geta valdið alvarlegum niðurgangi ef neytt er í of miklu magni (meira en 30 gr á dag). Ef einhver býður ykkur upp á þennan óþverra skuluð þið hlaupa langt, langt í burtu frá honum (og helst fara heim og búa til holla orkubita!!).
Innihaldslýsing:
Kellogg‘s Special K Cereal (44%), Rice, Wheat (Wholewheat, Wheat Flour), Sugar, Wheat Gluten, Defatted Wheatgerm, Dried Skimmed Milk, Salt, Barley Malt, Flavouring, Vitamin C, Niacin, Iron, Vitamin B6, Riboflavin (B2), Thiamin (B1), Folic Acid, Vitamin B12, Glucose Syrup, Strawberry Flavour Fruit Pieces (8%) (Sugar, Cranberries, Citric Acid, Strawberry Flavouring, Elderberry Juice Concentrate), Fructose, Vegetable Oil, Sugar, Dextrose, Humectant (Sorbitol, Glycerol), Dried Skimmed Milk, Milk Whey Powder, Calcium Carbonate, Milk, Sugar, Flavourings, Emulsifier (Soy Lecithin), Antioxidant (E320)
Glúteinlaust: Nei
Mjólkurlaust: Nei
Hnetulaust: Já
Næringargildi í 100 gr:
Orka (kcal): 400
Protein: 8 gr
Kolvetni: 75 gr
Þar af sykur: 35 gr
Þar af sterkja: 39 gr
Fita: 8 gr
Þar af mettuð fita: 3,5 gr
Þar af einómettuð: ekki tekið fram
Þar af fjölómettuð: ekki tekið fram
Transfita: ekki tekið fram
Óhollustueinkunn: 2,0 (10 er hollast)