Forsíða CafeSigrun.com
Fara beint í leiðarkerfi vefjarins
Í dag er 30. júlí, 2010
 

Verðkönnunin

Jæja...þá er það verðkönnunin. Hún er mjög óformleg, gerð í London og í Reykjavík dagana 13-15. nóvember. Myndirnar eru teknar á tvo síma við léleg skilyrði sem útskýrir hversu litlar og ljótar myndirnar eru. Ég ákvað að taka merki sem eru til bæði heima og á Íslandi þannig að ég væri ekki að bera saman t.d. 500 grömm af möndlum sem kosta um 600 krónur í UK en 1300 krónur á Íslandi. Það er munur sem ég skil ekki, sama má segja um cashewhnetur, ferskar kryddjurtir, lífrænt framleiddar hreinlætisvörur (sama merki, sami framleiðandi) o.s.frv. Ég reyndi að taka sama magn til að fá sem réttasta samanburðinn, en stóru krukkurnar af hnetusmjörinu voru reyndar ekki til í UK og heldur ekki sjampóið en ég athugaðu bara verðið online í búðunum til að hafa það sambærilegt magn og hér heima. Sultan inniheldur þó nákvæmlega sama magn. Ég miðaði við gengið þann daginn sem ég tók myndina sem var nokkuð í meðallagi bara miðað við undanfarna mánuði (eða 125). Ég tók ekki dýrustu og ódýrustu verslanirnar. Meira að segja voru verslanirnar í UK yfirleitt "dýrari" ef eitthvað er miðað við verslanir heima, til dæmis ef borin er saman sultan í heilsubúð í UK og svo sultan í Hagkaupum Kringlunni. Sama sulta í heilsubúð á Íslandi er mun dýrari en í Hagkaupum (þó nógu dýrt sé). Það hefði til dæmis ekki verið sanngjarnt að bera saman heilsubúðir í London og svo Bónus heima eða Asda úti (lágt verð) og svo Heilsuhúsið heima svo ég reyndi að fara meðalveginn. Ég valdi ekki sérstaklega vörur til að bera saman verð, heldur tók ég af handahófi eitthvað sem ég hef séð undanfarin ár. Athugið líka að í UK er oft 2 fyrir 1 tilboð, sérstaklega á sjampói sem myndi lækka verðið töluvert en ég reikna það ekki með. En já...hér fer verðkönnunin.
Hnetusmjör í Bretlandi Hnetusmjör á íslandi
Hnetusmjör UK: Efri mynd: Magn 227 gr. Verð 1.69 (stóru eru á 2.39). ISK: 298 (stór) Verslun: Fresh and Wild (Wholefoods Market), Soho Hnetusmjör Ísland: Neðri mynd: Magn 340 gr. ISK: 457 Verslun: Heilsuhúsið Skólavörðustíg
Sjampó í Bretlandi Sjampó á Íslandi
L'oreal sjampó UK: Efri mynd UK: 400ml. Verð 1.87 (stóru eru á 2.89). ISK: 361 (stór) Verslun: Boots Carneby Street, Soho. L'oreal sjampó Ísland: Neðri mynd: Magn 400ml. ISK 497 Verslun: Hagkaup Kringlunni
Sulta í Bretlandi Sulta á íslandi
Afsakið hvað myndin er óskýr en verðið er 346 krónur á verðmiðanum vinstra megin og 405 krónur á þeim sem er hægra megin. Ég var óvart með plastið fyrir á linsunni á símanum (hann er nýr). St. Dalfour sultur UK: Magn 284 gr. Verð 1.59. ISK: 198 Verslun: Fresh and Wild (Wholefoods Market), Soho St. Dalfour sultur Ísland: ISK: 346-405 Verslun: Hagkaup Kringlunni Finnst ykkur skrítið að ég vilji búa í London. Ég kaupi inn fyrir a.m.k. 10-13 þúsund þó við séum tvö í heimili og ég kaupi aldrei nokkurn tíma kjöt og sjaldan (því miður) fisk. Nákvæmlega sama magn og svipaðar vörur í pokanum úti (í svipaðri verslun og Hagkaup Kringlan er...Waitrose) er um 50-60 pund (tæpar 6000-7000 krónur). Ég get orðið SVO reið. Ég er ekki að reyna að skapa kvart og umræður heldur bara að benda á hvað mér finnst þetta ósanngjarnt og ég er meira að fá útrás :)

 

Viltu segja eitthvað?


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Ég verð að segja að það er eitthvað mikið, mikið að hjá okkur fyrst þetta þarf að vera svona. Við erum stödd í árinu 2007, ekki 1907. Þetta okur er ástæðan fyrir því að ég mun flytja aftur til London.


 
 
Dóri sagði:

Mér finnst þetta ekkert okur, mjög eðlileg verðlagning hérna miðað við hvað flutningskostnaður á vörum og tollar/vsk etc hérna eru fáranlega hár kostnaðarliður. Þú getur reiknað með að bara við að flytja vörur inn frá heildsala úti í löndum bætist 30-50% ofaná verðið (fer eftir tollflokkum, magni, vsk-þrep) SVO kemur álagningin hjá búðinni (eða heildsala hérlendis og svo búðinni). Eðlilega ætti því varan að vera kannski hátt í 100% hærri hérlendis en annarstaðar.


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Það eru ekki hærri laun hér en í London..við þekkjum vinnumarkaðinn vel úti og launin eru lægri hér ef eitthvað er. Það sem ég skil ekki…t.d. verð á 500 gr möndlum (dæmi sem ég tek oft). Þó að við keyptum möndlurnar úr dýrustu heilsubúðinni í London, flyttum inn til Íslands (bættum ofan á aðflutningsgjöldum o.fl.) þá væru þær samt ódýrari en í heilsubúðum hérna heima? Það munar helming í verði og meira en það. Væri ekki hægt að kaupa frá ódýrari birgjum….kaupa í meira magni (og lækka verð) o.s.frv., o.s.frv.?


 
 
Smári sagði:

Það þarf að taka inn í myndina hér heima ýmsan aukakostnað.
Hærri laun, aðflutningsgjöld og við kaupum miklu minna inn af vörum en t.d. margra milljóna þjóð


 
 
Alma María sagði:

Já það er ekkert skrítið að þjóðin sé að fitna. Skyndiruslið er ódýrast og hinn almenni borgari hefur lítinn áhuga á því að vita hvað er í matnum sem hann borðar.
Ömurleg þróun sem ég veit ekki hvar endar…úffff


 
 
CafeSigrun.com sagði:

Grrrrrrrr. Ég verð svo reið þegar ég hugsa um þetta. Ég keypti oftar fisk í Waitrose því hann var hlutfallslega ódýrari miðað við heildarmagnið sem ég var að kaupa heldur en fiskur hérna heima (sem bætist ofan á allt annað fokdýrt sem maður er að kaupa). Ég þoli ekki þá staðreynd að maður sé að borga einhver lúxusgjöld fyrir að reyna að vera heilbrigður. Meðaljón hefur ekki efni á heilsubúðum og því síður mat eins og fiski eða free range kjúklingi (sem fæst ekki einu sinni hér). Í staðinn ræður unninn matur ríkjum og hamborgarastaðir og aðrir viðbjóðsstaðir blómstra.


 
 
Hrundski sagði:

Frábært framtak hjá þér. Við fáum nett sjokk þegar við komum heim og skreppum í búðina….. trúi aldrei því sem stendur á strimlinum.

En afhverju er fiskur svona hræðilega dýr á Íslandi????? Ég er að kaupa íslensk ýsuflök í Waitrose hérna á held ég svipuðu verði og heima ef ekki ódýrari. Næst þegar ég fer þangað skal ég taka niður verð og senda þér !!! Stundum hægt að sjá verðin í ocado.com. Hneyksl hneyksl hneyksl……..